jæja þá er nu enn einn
skóladagurinn buinn og það er alltaf að styttast meira og meira
i að maður komist i sumarfrí sem að er auðvitað ekkert nema
gott! en nóg með það það er allt gott að fretta af mér,
söngvakeppnin var fín nema hvað það sem að ég var ósattur við að
bjössi var ekki i verðlauna sæti þvi hann átti það svo
sannarlega skilið, og auk þess þegar hann var að syngja tók
allur salurinn undir og það var eina lagið sem að allur salurinn
tók undir! en svo voru öll lögin róleg og það var svona það
versta við keppnina fanst mer! ekkert eitthvað svaka spennandi
eða rosalega skemmtileg lög, var næstum sofnaður einusinni eða
2svar haha!
en svo er herbegið okkar nonna mjög flott
og það er i rauninni miklu betra að hafa þetta eins og það er nuna,
en viðsemsagt færðum rúmin og skrifstofuborðin og tókum all
rosalega til og munurinn er mikill og það er miklu betra að hafa
þetta svona! en svo tóku veðurguðirnir upp að því að láta snjóa í
nótt svo það var svona sma hvítt i morgun þegar maður fór a lappir
og svo þar sem að það er svo lítið eftir af skólanum er kominn timi
til að maður sanni hvað maður geti i náminu og nái þeim áföngum sem
að maður getur náð, er ekki viss hvernig þýskan fer..... EN svona
er þetta, þetta kemur allt betur í ljós þegar skólinn er buin og
einkuninar koma til min
!
EEEN nóg með það haha síðan í páskafríinu
erum við Elsa frænka min og fleiri vinir buinnir að vera að semja
svona brandara hehe, en hun Elsa er nú aðalhöfundurinn af þessum
frábæru bröndurum og við ákváðum að ég mundi setja þá á síðuna mina
Sumum mun kanski ekki finnast þessir brandarar fyndir en þegar
eg heyrði þá hlóg ég allavega mikið og ég veit um fleiri dæmi haha!
En áður en eg set þá á síðuna mina þá tek eg það fram að það er
ekkert illa meint með þeim og þetta er bara grín og það eigi að
hafa gaman af þeim
En hérna koma þeir:
Hver er munurinn á
voguni og kind ? Alltof lítill !!
Hvað er
sameiginlegt með vogungi og sáðfrumu ?
Aðeins einn af hverjum 10 miljörðum verður
mennskur
Hver er munurinn á
vogungi og körfubolta ?
Það er bannað að sparka í körfuboltan !!
Hver er munurinn á
vogungi og trampólíni ?
Maður fer úr skónum áðru en maður hoppar á
trampólíninu
Hvað kallar maður
vogung að labba yfir götu ?
Hraðahindrun
Hver er munurinn á
vogungi og hraðahindurn ?
Maður hægir á sér áður en maður keyrir yfir
hraðahindruninna
Volksvagen
folksbíll með 4 vogungum innbyrgðis keyrði fram af kletti og féll í
sjóinn .. hver er vondahliðin ?
Það var pláss fyrir 1 en vogung í bílnum.
Hvers vegna
klifraði vogungurinn yfir glervegginn ?
Hann vildi sjá hvað var hinu meginn
Hvers vegna dóu 7
vogungar á einu bretti ??
Þeir reyndu að ýta kafbátnum í gang
Þrír vogungar fóru
út að labba og sáu för á jörðinni
fyrsti vogungurinn
sagði “ þetta hljóta að vera för eftir hreindýr”
Annar vogungurinn
svaraði : “ nei asninn þinn það geta allir séð að þetta eru för
eftir kind
Þriðji vogungurinn
öskraði þá : “ hálfvitarnir ykkar þetta eru greinilega för eftir
hest !”
þeir voru enn þá
að rífast 10 mínútum seinna þegar lestin klessti á þá
!
Hvað geriru ef
vogungur kastar handsprengju á áttina til þin ?
Tekur pinnan úr og hendir henni tilbaka
Dag einn var vogungur að keyra i kringum
vatnið, sá hann þá að bíllinn hans var að verða bensínlaus, ákvað
hann að spara sér peninga og stela bensíni af öðrum bíl. Hann valdi
sér stóran húsbíl sem að einn skúti átti, læddist að honum og
smeygði slöngu ofan í tankinn. Svo saug hann fast, til að fá
bensínið til að renna.
Þegar lögreglan kom á staðinn sat eigandi húsbílsins grátandi af
hlátri á tröppunum. Vogungurinn lá hinsvegar gubbandi og stynjandi
á jörðinni. Hann var líka dálítið subbulegur í framan, eftir að
hafa sogið upp í sig vænan skammt úr salernistanki
húsbílsins.
Einu sinni voru
Gassi, Grænvetningur, Skúti og Vogungur að fljúga yfir Atlandshafið
til Englands. Þegar þeir eru komnir hálfa leiðina kemur
flugstjórinn hlaupandi aftur í til þeirra og segir “ það hefur
komið upp bilun í hreyflunum í flugvélinni og vélin er alltof
þugn!! Ég er búin að henda öllum farangrinum og öllu lausu sem hægt
er að henda úr vélinni en hún er enn alltof þung! Einhver af ykkur
verður að gerast hetjulegur og hoppa út, annars brotlendum við!”
það var alger þögn meðal þeirra fjögra svo eftir smá stund stendur
Grænvetningurinn upp, lítur yfir þá og segir “ allt fyrir
Mývatnssveitina, lifi Grænavatn!” og hoppar út úr flugvélinni, núna
eru bara Gassinn, skútinn og vogungurinn eftir. Eftir 10 mín kemur
flugstjórinn hlaupandi aftur og segir “ vélinn er enn of þung,
einhver af ykkur verður að hoppa annars brotlendum við!
“ Gassinn, skútinn og vogungurinn þagna og líta hver
á annan. Eftir smá stund kinkar gassinn kolli, stendur virðulega
upp og segir “ allt fyrir Mývatnssveitina, lifi Garður” og hoppar
út úr flugvélinni. Núna eru bara Skútinn og Vogungurinn einir
eftir. Eftir 8 mín kemur flugmstjórinn hlaupandi “ það eru bara
nokkrir km í land en vélin er enn of þung og bensínið alveg að
klárast! Við munum aldrei ná í land, nema annar ykkar fórni sér
!!”
Skútinn og vogungurinn líta á hvor annan og eftir smá stund stendur
skútinn upp og segir “ allt fyrir mývatnssveitina, lifi
Skútustaðir” og hendir svo Vogunginum út úr flugvélinni 
Gassi, Skúti og Vogungur
voru teknir fastir á eyja af innfæddu fólki.innfædda fólkið sagði
við gassann skútann og vogunginn að þeir fengu að lifa efað þeir
mundu hlaupa inn í skóginn og sækja 50 stykki af einhverjum ávexti
og klára allt. Gassinn fór fyrstur inn í skóginn og kemur til baka
þegar hann er buinn að safna 50 kirsjuberjum, þegar hann er buinn
með 48 ber þá getur hann enganvegin borðað meira og er þá drepinn.
Svo fara skútinn og vogungurinn saman af stað inn í skóginn til að
safna einhverjum ávexti, skútinn kemur svo til baka með 50 banana
og byrjar að borða þá, þegar hann er buinn með 48 banana springur
hann úr hlátri og er þá drepinn. Þegar skútinn kemur til himna er
hann í hláturskasti svo að gassinn ákveður að spurja hann hvað sé
svona fyndið, svo skutinn segir við gassann" þegar ég var buinn með
48 banana sá ég vogunginn koma með 50 melónur svo ég drapst úr
hlátri og var drepinn". 
jæja ég hef ekki fleiri brandara i
augnablikinu en ég vona að þið hafið skemmt ykkur við lesturinn og
vona að einhverjir taki þessu ekki ill
en þá kveð ég i bili með
þessu bloggi og hvet alla til að kommenta og segja álit sitt
